Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Jarðskjálfti 3,3 að stærð í suðaustur Noregi

Íbúum í Austur-Noregi brá í brún þegar jarðskjálfti af stærðinni 3,3 á Richter reið yfir klukkan 09:24:54 í morgun. Skjálftinn átti upptök sín rétt norðaustur af Osló, nálægt miðbæ Lillestrøm og fannst vel á stóru svæði.Fólk sem var statt í húsnæði NRK í Marienlyst í Osló lýsa skjálftanum sem miklum dynk og hristing í tæplega tíu sekúntur.Grunnir jarðskjálftar verða ekki oft á þéttbýlissvæðum í Noregi, þeir verða oftast dýpra í jörðu, á 10-20 km dýpi, og finnst því ekki eins glögglega. Samkvæmt bráðabirgðamælingum virðist þessi skjálfti hafa verið á 5-10 km dýpi.Lögreglan í Osló greindi frá því að verið sé að kanna hvort skemmdir hafi orðið vegna skjálftans en engar slíkar tilkynningar hafa borist enn.Unnið er að því að greina skjálftann.
Jarðskjálfti 3,3 að stærð í suðaustur Noregi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta