Donald Trump Bandaríkjaforseti var fluttur burt í skyndi eftir að skothvellir heyrðust í kvöldverði samtaka blaðamanna Hvíta hússins í Washington í gærkvöld.Kvöldverðurinn var svo til nýhafinn og skömmu áður en Trump átti að halda ræðu heyrðust nokkrir skothvellir. Gestir skýldu sér undir borðum og lífverðir og öryggisverðir fylgdu Bandaríkjaforseta, forsetafrúnni, ráðherrum og öðrum háttsettum gestum burt af vettvangi í öruggt skjól.Bandaríkjaforseti fór yfir atburði kvöldsins á blaðamannafundi í Hvíta húsinu. Árásarmaðurinn skaut nokkrum skotum úr vopni sínu nærri öryggishliðinu við innganginn í salinn þar sem kvöldverðurinn fór fram. Árásarmaðurinn skaut einn leyniþjónustumann en skotið hæfði öryggisvesti mannsins sem slasaðist ekki alvarlega. Árásarmaðurinn var yfirbugaður skjótt og ör