Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Þungskýjað suðvestanlands en glittir í sól norðaustanlands

Suðaustan strekkingur verður suðvestan til í dag með rigningu öðru hverju. Annars staðar á landinu er von á suðlægri eða breytilegri átt. Á Norður- og Austurlandi verður þurrt og glittir jafnvel í sól seinni part. Hiti verður víða 8 til 13 stig.Tvö úrkomusvæði ganga norðaustur yfir landið í nótt með rigningu og hvassara veðri.Á þriðjudag léttir til norðaustanlands og dregur úr vætu en kólnar vestast á landinu þegar kvöldar. Útlit er fyrir kólnandi veður eftir því sem líður á vikuna og má búast við að hluti úrkomunnar falli sem slyddu- eða jafnvel snjóél.
Þungskýjað suðvestanlands en glittir í sól norðaustanlands

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta