Þegar Iðunn var opnuð með pompi og prakt í desember 2024 voru sex veitingastaðir í mathöllinni. Nú, 16 mánuðum síðar, eru þeir aðeins tveir. Rekstrarörðugleikar hafa verið töluverðir að sögn fyrrverandi rekstraraðila. AKUREYRINGAR SPENNTIR FYRIR MATHÖLL Það voru stórar fréttir fyrir Akureyringa þegar opna átti fyrstu mathöllina og það á Glerártorgi. Eik fasteignarfélag, sem á Glerártorg, stóð fyrir breytingum á stóru rými þar sem áður hafði verið lítið kaffihús og veitingastaður. Þeir gerðu samning við Guðmund Pétursson og Aron Lárusson um rekstur mathallarinnar sem þeir nefndu Iðunni.Aðeins tveir veitingastaðir eru opnir á Iðunni mathöll sem er á Glerártorgi á Akureyri. Mathöllin var opnuð fyrir 16 mánuðum og illa hefur gengið hjá rekstraraðilum.Sex veitingastaðir stóðu gestum opnir þa