Í dag eru fjörutíu ár frá Chernobyl-slysinu þegar einn ofnanna í Chernobyl-kjarnorkuverkinu í Úkraínu sprakk. Kjarnorkuslysið er eitt versta slys sinnar tegundar í heiminum. Mannleg mistök við öryggisprófun urðu til þess að kjarnaofn fjögur sprakk og gífurlegt magn geislavirkra efna barst út í andrúmsloftið. Eldur logaði í kjarnorkuofninum í 10 daga.Úkraína tilheyrði Sovétríkjunum þegar slysið átti sér stað. Fyrst um sinn neituðu sovéskir embættismenn að slys hefði orðið í kjarnorkuverinu. Þegar geislun fór að mælast í nágrannalöndum var ljóst að slysið væri mun alvarlegra en stjórnvöld höfðu greint frá.Talið er að kjarnorkuslysið hafi valdið dauða allt að 4.000-100.000 manns beint eða óbeint. Að minnsta kosti 600.000 manns komu að hreinsunarstarfi og urðu fyrir mikilli geislun.Alls voru u