Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

14 létust þegar sprengja sprakk við hraðbraut

14 létust þegar sprengja sprakk í vegkanti hraðbrautar í Suðvestur-Kólumbíu í gær. Að minnsta kosti 38 eru særðir. Forseti Kólumbíu, Gustavo Petro, sagði að árásin væri runnin undan rifjum hryðjuverkamanna og eiturlyfjasmyglara. Hann sakaði Ivan Mordisco, eftirlýstan eiturlyfjakóng, um að bera ábyrgð á árásinni í færslu á X.Tveir létust í annarri sprengjuárás í gær nærri herstöð í Cali, sem er þriðja stærsta borg landsins. FARC-skæruliðahreyfingin hafnaði friðarsamkomulagi við ríkisstjórnina 2016 og hluti skæruliðanna hefur markvisst reynt að trufla friðarviðræður við Petro.Öryggisástand í landinu er eitt helsta málefnið í forsetakosningunum sem verða 31. maí. Petro býður sig ekki fram í ár. Vinstrisinnaður öldungadeildarþingmaður, Ivan Cepeda, er með forskot samkvæmt könnunum. Hann er ein
14 létust þegar sprengja sprakk við hraðbraut

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta