Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Trump fluttur burt í skyndi þegar skothvellir heyrðust

Donald Trump og eiginkona hans Melania á kvöldverði blaðamanna fyrr í kvöld.EPA / YURI GRIPAS / POOLDonald Trump Bandaríkjaforseti var fluttur burt í skyndi eftir að skot heyrðust í kvöldverði blaðamanna í Hvíta húsinu í Washington í kvöld. Samkvæmt vitnum og fréttamönnum AFP fréttaveitunnar heyrðust skothvellir á kvöldverðinum og gestir skýldu sér undir borðum.Öryggisverðir fluttu Bandaríkjaforseta og aðra háttsetta gesti kvöldverðarins burt hver á eftir öðrum. Fjölmennt lið lögreglu er á vettvangi og þyrlur fljúga yfir Washington Hilton hótelinu þar sem kvöldverðurinn var haldinn. Samkvæmt fréttaveitunni AFP er grunaður árásarmaður í varðhaldi.Þetta er í fyrsta sinn sem Trump þiggur boð í árlegan kvöldverð blaðamanna Hvíta hússins.
Trump fluttur burt í skyndi þegar skothvellir heyrðust

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta