8 voru drepnir í miklum árásum Rússa á borgina Dnipro í Úkraínu undanfarinn sólarhring. 49 særðust í linnulausum árásunum sem dundu á borginni í um 20 klukkustundir. Árásirnar beindust gegn íbúðarhúsnæði, fyrirtækjum og orkuinnviðum. Borgarstjóri Dnipro, Borys Filatov, segir árásirnar þær umfangsmestu sem hafi verið gerðar á borgina. Aðstoðarborgarstjóri Dnipro var einn þeirra sem særðust í árásinni.Þá særðust einnig 10 í árásum Dnipro-Petrovsk héraðs, og þá var einn drepinn og fjórir særðust í árásum sem gerðar voru á litla farþegarútu í Zaporizhzhia-héraði.Dnipropetrovsk-hérað er mikilvægt iðnaðarhérað og þaðan eru um 100 kílómetrar að víglínunni. Rússneskar hersveitir hafa náð litlu svæði af héraðinu, sem er ekki eitt þeirra héraða sem Rússar hafa innlimað eftir að innrásin hófst.Úkraín