Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Ísrael gerir loftárásir í suðurhluta Líbanons

Ísraelsher gerði loftárásir á að minnsta kosti fjóra staði í suðurhluta Líbanons í dag. Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels fyrirskipaði árásir fyrr í dag í kjölfar meintra brota á vopnahléi af hálfu Hezbollah-samtakanna.Samkvæmt fréttaveitu AFP greina líbanskir ríkisfjölmiðlar frá því að árásir hafi verið gerðar á bæi í héruðunum Bint Jbeil, Tyre og Nabatieh.Í yfirlýsingu segir Ísraelsher skotmörkin hafa verið hernaðarinnviði í Hezbollah í suðurhluta landsins. Þar segir jafnframt að herinn hyggist halda aðgerðum sínum áfram.EPA / ILIA YEFIMOVICH / POOL
Ísrael gerir loftárásir í suðurhluta Líbanons

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta