Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

„Treystið nefinu og leyfið bragðlaukunum að leiða ykkur áfram“

Alþjóðlegi diskósúpudagurinn var haldinn hátíðlegur á Garðatorgi í Garðabæ í dag. Markmiðið með deginum er að vekja athygli á matarsóun á bragðgóðan og skemmtilegan hátt.Um þrjátíu kíló af mat sem átti að henda fóru í súpugerðina og voru tvær súpur á boðstólum.„Það er annars vegar rótargrænmetissúpa með smá tómat og hún var aðeins svituð með smá smjöri. Og svo er hérna í þessum er að bruggast einhver ævintýrasúpa með sveppum og fennel og appelsínu og gúmmilaði,“ segir Dóra Svavarsdóttir, diskósúpustjóri.Dóra hvetur landsmenn til að sporna við matarsóun, kíkja reglulega í ísskápinn og skella í súpu. Uppskrift að góðri súpu sé hráefni sem á að henda, frábært fólk og slatti af gleði.„Ekki vera hrædd, treystiði nefinu og leyfið bragðlaukunum að leiða ykkur áfram,“ bætir Dóra við.
„Treystið nefinu og leyfið bragðlaukunum að leiða ykkur áfram“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta