Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Kjósendur í Palestínu vonast eftir breytingum

Kjörsókn jókst eftir hádegi í Palestínu þar sem sveitarstjórnarkosningar fóru fram í dag. Kosið var á Vesturbakkanum og í borginni Deir al-Balah á Gaza.Um ein og hálf milljón var á kjörskrá, þar af um 70 þúsund á Gaza. Þetta voru fyrstu kosningarnar í Palestínu eftir að stríðið á Gaza hófst fyrir tveimur og hálfu ári. Síðast voru kosningar á Gaza 2006, þegar kosið var til þings.Flestir frambjóðendur og listar studdu Fatah og Mahmoud Abbas, forseta Palestínu. Aðrir skilgreindu sig sem óháða frambjóðendur og enginn var í framboði fyrir Hamas. Kjörstaðir voru opnaðir klukkan sjö að staðartíma í morgun, klukkan fjögur í nótt að íslenskum tíma, og var lokað klukkan sjö, sem er klukkan fjögur síðdegis að íslenskum tíma.Kjörsókn var dræm fram eftir degi á Vesturbakkanum og klukkan 14 höfðu 40 pró
Kjósendur í Palestínu vonast eftir breytingum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta