Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Framleiða hljóðdempandi veggpanela úr endurnýttu textílefni

Tíu tonn af textíl berast til sorpvinnslu á hverjum degi. Nýsköpunarfyrirtækið Flöff umbreytir textílnum í nýjan efnivið og setur á markað hljóðdempandi veggpanela.Árið 2024 kynntust fjórar konur á námskeiði hjá KLAK - Icelandic Startups. Þær höfðu sömu sýn; vildu búa til hringrás fyrir endurvinnslu textíls hérlendis en textílúrgangur er eitt stærsta úrgangsvandamál heimsins. Í kjölfarið stofnuðu þær fyrirtækið Flöff sem fær afgangstextíl frá íslenskum fyrirtækjum til framleiðslu á veggpanelum.„Við erum með stóra drauma,“ segir Ólöf Sigríður Jóhannsdóttir, ein stofnanda fyrirtækisins. Hún segist vonast til þess að Flöff verði fyrsta textílendurvinnsla Íslands.
Framleiða hljóðdempandi veggpanela úr endurnýttu textílefni

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta