Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Ofbeldi gagnvart ríkisstarfsmönnum algengt vandamál

Margir opinberir starfsmenn mæta aðgerða- og úrræðaleysi þegar þeir tilkynna um ofbeldi og áreitni í starfi, segir formaður BSRB. Hún segir mál starfsmanna Matvælastofnunar grafalvarlegt og kallar eftir því að stjórnvöld taki málið föstum tökum.Áreitni í garð starfsmanna Matvælastofnunar hefur aukist að undanförnu. Yfirdýralæknir greindi frá því í fréttum í gær að starfsmenn yrðu fyrir ofbeldi og hótunum við eftirlitsstörf og ærumeiðingum á samfélagsmiðlum. Þar að auki hefur börnum þeirra og öðrum fjölskyldumeðlimum verið hótað.„Þetta eru auðvitað grafalvarleg mál og eins og gefur að skilja í svona málum hefur þetta víðtæk áhrif á einstaklinga sem verða fyrir því og fjölskyldur þeirra. En það má heldur ekki gleyma því að þetta er bara dýrt fyrir samfélagið,“ segir Sonja Ýr Þorbergsdóttir,
Ofbeldi gagnvart ríkisstarfsmönnum algengt vandamál

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta