Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Orban hættir á þingi

Viktor Orban segist ætla að hætta á þingi eftir að flokkur hans tapaði stórt í þingkosningunum í Ungverjalandi fyrr í mánuðinum. Hann tilkynnti um ákvörðun sína í myndbandi á samfélagsmiðlinum Facebook og vill algjöra endurnýjun á flokknum sínum, Fidez. „Eins og er er ekki þörf á mér á þingi heldur við endurskipulagningu flokksins á landsvísu.“Orban sagðist vera tilbúinn til að vera formaður flokksins þar til flokksþing fer fram í júní. Orban, sem er 62 ára, hefur verið á þingi síðan 1990. Fidez fékk aðeins 52 sæti í þingkosningunum en Tisza-flokkur Peters Magyars, fékk tvo þriðju þingsæta eða 141. Magyar hefur verið falið að mynda nýja ríkisstjórn.
Orban hættir á þingi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta