Shehbaz Sharif, forsætisráðherra Pakistans, segir að ríkisstjórn sín sé staðráðin í að halda áfram að reyna að miðla málum milli Írana og Bandaríkjamanna. Í dag var ljóst að ekkert yrði af fyrirhuguðum fundahöldum með erindrekum ríkisstjórnar Bandaríkjanna og Írans. Utanríkisráðherra Írans hélt aftur heim eftir fund með pakistönskum ráðamönnum og Bandaríkjaforseti hætti við að senda sína erindreka til Pakistans.Sharif sagðist í dag hafa rætt við Masoud Pezeshkian, forseta Írans, og ítrekað vilja sinn til að liðka fyrir friði. Shehbaz Sharif tók á móti Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Írans, í dag.AP/Pakistan Prime Minister Office / Uncredited