Mikinn klofning má greina á afstöðu íbúa á höfuðborgarsvæðinu til borgarlínu. Flestir eru annaðhvort mjög fylgjandi verkefninu - eða alfarið á móti því.Þetta sýna niðurstöður úr Þjóðmálakönnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands um viðhorf til málefna fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í maí. Í rannsókn Rúnars Vilhjálmssonar, prófessors í félagsfræði, kemur fram að borgarlínan gæti vart verið umdeildari.Ríflega 39 prósent íbúa segjast frekar eða mjög mótfallnir framkvæmdinni - og sama hlutfall segist frekar eða mjög fylgjandi.Stuðningurinn við borgarlínu er mestur í Reykjavík og Hafnarfirði, en andstaðan mest í Garðabæ, Mosfellsbæ og Kópavogi. ÞVÍ LENGRA FRÁ MIÐBORGINNI - ÞVÍ MEIRI ANDSTAÐA Marktækur munur er á stuðningi við borgarlínuna eftir hverfum í Reykjavík.Íbúar í miðbæ, vestur