Njarðvíkingurinn Hreinn Bergmann Óskarsson gerði sér lítið fyrir og fór átta mismunandi strætóferðir þriðjudaginn síðasta, þann 21. apríl, en hann fór meðal annars í læknisheimsókn og með heyrnartæki í viðgerð. Hann er lögblindur og með skerta heyrn eftir að hafa lent í slysi en lætur það ekki stoppa sig á nokkurn hátt. Dóttir hans birti á dögunum færslu þar sem hún reifar nýjustu ferðasögu pabba síns.