Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Örkuðu yfir Öxi og krefjast samgöngubóta

„Við erum bara að labba Öxi til að vekja athygli á að það þarf að laga þennan veg. Við viljum að það sé heilsársvegur yfir Öxi,“ segir Kolfinna Ásta Jónsdóttir, 15 ára Djúpavogsbúi.Kolfinna gekk yfir Öxi í dag ásamt fleiri stelpum í 10. bekk á Djúpavogi. Þær krefjast samgöngubóta til Egilsstaða. Næsta haust verða 30 krakkar frá Djúpavogi í Mennaskólanum þar og þeim líst illa á að keyra brattan og holóttan veginn þegar þær fá bílpróf.„Það eru rosalega margar holur og það er bara erfitt að keyra hann,“ segir Kolfinna.Vegurinn yfir Öxi á milli Egilsstaða og Djúpavogs er gamall malavegur og lokast stóran hluta vetrar. Það er mikið baráttumál fyrir íbúa á Djúpavogi og Egilsstöðum að gerður verði heilsársvegur en hann myndi stytta leiðina um tæpa 70 kílómetra og hringveginn einnig.
Örkuðu yfir Öxi og krefjast samgöngubóta

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta