Sprengingar og skothríð hafa dunið á Bamako, höfuðborg Malí í dag, þar sem vígahópar hafa hrint af stað að því er virðist samhæfðum árásum víða um landið.Her landsins segir átök enn standa yfir. Þá vinna varnar- og öryggissveitir við að ná stjórn á ástandinu. Vitni hafa greint frá hörðum átökum, meðal annars við herstöðina Kati í grennd við höfuðborgina. Þar hafa þyrlur sést á lofti og vegum hefur verið lokað.Tilkynningar um árásir hafa einnig borist í borgunum Gao og Kidal í norðurhluta landsins og í borginni Sevare sem er staðsett fyrir miðju þess. Að mati sérfræðinga gæti árásin reynst sú stærsta af hálfu jíhadista í Malí svo árum skiptir. HERFORINGJASTJÓRN KOMST TIL VALDA ÁRIÐ 2020 Bandaríska sendiráðið í Malí hefur hvatt borgara til að halda sig innandyra og bresk stjórnvöld hafa m