Íslamistasamtök í samvinnu við uppreisnarmenn úr röðum Túarega virðast hafa gert samhentar árásir víða í Malí í Vestur-Afríku í morgun, meðal annars á höfuðborg landsins. Um er að ræða vinasamtök hryðjuverkahópsins al-Qaeda, en þau eru sögð reyna að steypa ríkisstjórn landsins af stóli.