Þrjú af fjórum framboðum í Borgarbyggð eru mótfallin uppbyggingu á vindmyllum í sveitarfélaginu. Sá fjórði segist munu fylgja vilja íbúa sveitarfélagsins.Fráfarandi sveitarstjórn samþykkti árið 2024 breytingu á deiliskipulagi sem heimilaði fyrirtækinu Hrjónum að reisa tæplega hundrað metra hátt rannsóknarmastur við Grjótháls í Borgarfirði í þeim tilgangi að kanna hvort þar séu forsendur til að reisa vindorkuver.Rannsóknarmastrið hefur verið reist og sagði Guðveig Lind Eyglóardóttir, forseti sveitarstjórnar og oddviti Framsóknarflokksins, að afgreiðsla sveitarstjórnar á málinu hefði aðeins snúist um leyfi landeiganda til rannsókna á eigin landi.Davíð Sigurðsson, oddviti Framsóknar í Borgarbyggð, segir að ekki sé gert ráð fyrir vindorkuverum í sveitarfélaginu, seinasta kjörtímabil hafi heldu