Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Óljóst hvort Bandaríkjamenn og Íranar fundi í dag

Utanríkisráðherra Írans er kominn til Pakistan og erindrekar Bandaríkjastjórnar eru sagðir á leiðinni þangað til friðarviðræðna. Talsmaður utanríkisráðuneytis Írans segir þó enga beina fundi milli Írans og Bandaríkjanna á dagskrá, líkt og Bandaríkjaforseti hafði sagt í gær. Átta vikur eru síðan Bandaríkin og Ísrael hófu árásir á Íran.Alls er óljóst hvort verði af friðarviðræðum milli Bandaríkjanna og Írans í Pakistan í dag. Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Írans, kom til Pakistan í morgun og fundaði með yfirmanni pakistanska hersins. Araghchi sagðist næst ætla að ferðast til Óman og Rússlands og sagði í færslu á samfélagsmiðlum að markmiðið væri að ráðfæra sig um þróun mála í heimshlutanum.Talsmaður utanríkisráðuneytis Írans sagði Araghchi aðeins hitta hátt setta pakistanska embættismenn
Óljóst hvort Bandaríkjamenn og Íranar fundi í dag

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta