Rúna Hauksdóttir Hvannberg, forstjóri Lyfjastofnunar, segir lög brotin með sölu á hunangi með stinningarlyfjum og efnum sem veita kannabisáhrif.Engin leið sé að rekja uppruna lyfjanna.Hún segir fólk geta stofnað heilsu sinni í hættu með neyslu á slíkum lyfjum.Litli frændi fíkniefnisins Spice og hunang sem inniheldur stinningarlyf og heitir aukinni karlmennsku er til sölu á opnum íslenskum vefsíðum.Allur gangur er á því hvort innihaldsefnin séu gefin upp. ÓMÖGULEGT AÐ VITA VIÐ HVAÐA AÐSTÆÐUR LYFIN VORU FRAMLEIDD Í fréttum RÚV á fimmtudag kom fram að í mælingum réttarmeinafræðings hefðu greinst tvö stinningarlyf í hunanginu, annað þeirra reyndist vera virka efnið í Viagra.„Ef það reynast vera, eins og kom fram í mælingunum, stinningarlyf í þessu hunangi, þá er það ólögleg sala,“ segir Rún