Fimmtán prósent þeirra sem þiggja fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg vegna atvinnuleysis hafa þegið greiðslur frá borginni í tólf mánuði eða lengur. Alls fengu 1.173 greidda fjárhagsaðstoð frá borginni í febrúar, af þeim voru 60 prósent atvinnulaus og 29 prósent óvinnufær. Ellefu prósent fengu fjárhagsaðstoð af öðrum ástæðum.Þau sem eru atvinnulaus og hafa þegið fjárhagsaðstoð í tólf mánuði eða lengur eru því um níu prósent af heildarfjölda þeirra sem fá slíka aðstoð, 110 í allt.Þetta kemur fram í minnisblaði sem Reykjavíkurborg tók saman fyrir velferðarnefnd Alþingis vegna áforma um að stytta rétt til atvinnuleysisbóta úr 30 mánuðum í 18. FÆRRI ÞIGGJA AÐSTOÐ EN ÁÐUR Fólki sem þiggur fjárhagsaðstoð frá borginni hefur fækkað um 25 prósent á síðustu fjórum árum, erlendum ríkisborgurum um