„Vestmannaeyjar og önnur eyjasamfélög geta ekki verið hornkerlingar í samgönguáætlun,“ segir Halla Hrund Logadóttir, þingmaður Framsóknarflokks. Hún hefur óskað eftir opnum fundi í umhverfis- og samgöngunefnd með Eyjólfi Ármannsyni innviðaráðherra um stöðu samgangna til Vestmannaeyja sem og nauðsyn heildstæðrar ferjuáætlunar fyrir allt landið.Tilefni fundarins er að samgöngur til og frá Vestmannaeyjum hafa raskast verulega vegna bilunar í Herjólfi og krefjandi stöðu Landeyjahafnar. „Vestmannaeyjar er þungavigtarstaður sem má ekki vera útundan í okkar plönum,“ segir Halla Hrund.Landeyjahöfn hefur verið lokuð meirihluta ársins. Vestmannaeyingar eru langþreyttir á stöðunni og vilja róttækar aðgerðir. Innviðaráðuneytið hefur framlengt ríkisstyrkt áætlunarflug til Vestmannaeyja um tvær vikur ve