Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Stjórnvöld vilja vernda viðkvæmar strendur fyrir ágangi ferðamanna

Grísk stjórnvöld hafa uppfært lista yfir 250 strandsvæði sem ber að halda í náttúrulegu ástandi og í friði fyrir sívaxandi ágangi ferðamanna. Grískur efnahagur reiðir sig verulega á ferðaþjónustu, sem veltir milljörðum evra ár hvert, en ágangurinn þykir víða orðinn úr hófi.Strendur sem hafa sérstakt fagurfræðilegt, jarðfræðilegt eða vistfræðilegt gildi eiga nú að njóta verndar og eins búsvæði, plöntur og dýrategundir sem taldar eru í hættu. Listinn hefur lengst um rúmlega 50 strendur frá árinu 2024 og telur nú 250 svæði.Víða hefur verið gripið til þess ráðs að rífa niður byggingar sem reistar hafa verið í leyfisleysi á strandsvæðum Grikklands.Bannað verður að nota sólhlífar og leigja sólbekki á vernduðum strandsvæðum, hvort tveggja á meginlandinu og í Eyjahafi, þar sem finna má heimkynni m
Stjórnvöld vilja vernda viðkvæmar strendur fyrir ágangi ferðamanna

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta