Pólskir kaþólikkar sem hugsa sér gott til glóðarinnar og hyggjast fagna vorhátíð um næstu helgi fengu góðar fréttir í dag. Erkibiskupinn í Varsjá ákvað að liðka á reglum kirkjunnar um matarneyslu á föstudegi.Maíhátíðin Majówka er haldin 1. til 3. maí ár hvert og markar upphaf grilltímabilsins í Póllandi. Hátíðin nær yfir baráttudag verkalýðsins 1. maí, fánadaginn 2. maí og stjórnarskrárdaginn 3. maí. Fyrsti og þriðji dagur mánaðarins eru almennir frídagar og margir taka sér frí 2. maí til að ferðast, skemmta sér og grilla í stuttu vorfríi.Nú bregður svo við að 1. maí er á föstudegi, þegar kaþólikkar eiga að neita sér um kjöt og frekar borða fisk, til marks um föstu. Þetta virðist hafa farið fyrir brjóstið á sumum sem eru vanir að setja kjöt á grillið við upphaf Majówka.Adrian Galbas, erkib