Innviðaráðuneytið hefur engin viðmið eða skilyrði um hvort halda eigi uppi skólastarfi í Grindavík. Ríkisstjórnin telur ekki vera forsendur til að hefja að nýju skólahald í Grindavík að svo stöddu eða stuðla að aukinni búsetu barna í bænum.Bæjarstjórn Grindavíkur hefur ákveðið að halda úti skólastarfi í haust og í ályktun íbúafundar í Grindavík í vikunni er þess krafist að stjórnvöld tryggi skólahald í bænum í haust.Ekkert skólahald hefur verið í Grindavík frá því að bærinn var rýmdur 2023 en um 80 börn hafa verið forskráð í leik- og grunnskóla í Grindavík í haust. ENGIN LAGAHEIMILD TIL AÐ BANNA SKÓLAHALD Sveitarfélög bera ábyrgð á skólahaldi í leik- og grunnskólum og það er í höndum mennta- og barnamálaráðuneytisins að meta hvort skólahald í Grindavík samræmist lögum. Ráðuneytið hefur