Fjórir eru í gæsluvarðhaldi, grunaðir um aðkomu að smygli á 14 lítrum af amfetamínbasa til landsins með gámaskipinu Dettifossi.Gæsluvarðhald yfir þremur mönnum var framlengt í vikunni en samkvæmt heimildum Vísis hefur fjórði maðurinn verið úrskurðaður í gæsluvarðhald. Lögregla gerði húsleit hjá tveimur sem sitja í gæsluvarðhaldi.Sex voru handteknir eftir að lögregla og tollgæsla fóru um borð í Dettifoss í Sundahöfn 6. apríl. Þremur var sleppt stuttu síðar. Fjórir eru nú í haldi. Tveir þeirra eru starfsmenn Eimskips og eru í gæsluvarðhaldi til 28. apríl. Þriðji maðurinn var úrskurðaður í gæsluvarðhald til 5. maí. Sá fjórði var úrskurðaður í gæsluvarðhald í gær og rennur það út 30. apríl.Styrkur amfetamínbasans liggur ekki fyrir og því ekki hægt að segja til um hversu mikið hefði verið hægt