Nýr íslenskur brúðusöngleikur verður frumsýndur í Samkomuhúsinu á Akureyri laugardaginn 25. apríl.Að sýningunni stendur hópurinn Handbendi, sem á rætur sínar að rekja til Hvammstanga. Átta þjóðerni eru í fjölbreyttum leikhópnum og fjallar sýningin um samkennd, rætur og sögur ólíkra heima.Verkið fjallar um Óla, sem er 10 ára og á heima út á landi. Hann á íslenskan föður en móður frá Paragvæ. Þegar að amma hans frá Paragvæ kemur í heimsókn opnast ný veröld fyrir Óla sem vill kynna sér ólíka heima og fjölbreytnina sem þeim fylgir.