Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Fá ekki að kalla þrjá dómara til að bera vitni

Landsréttur hafnaði í gær kröfu Margrétar Friðriksdóttur og Hilmars Garðars Þorsteinssonar lögmanns hennar um að þrír dómarar yrðu látnir bera vitni fyrir Héraðsdómi Reykjaness. Margrét var ákærð fyrir ærumeiðingar og rógburð um Barböru Björnsdóttur, dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur. Ekki tókst að kveða upp dóm innan tilskilins frests eftir aðalmeðferð og því verður málið endurflutt.Sakirnar snúa að orðum sem Margrét lét falla um Barböru eftir að sú síðarnefnda sakfelldi hana fyrir líflátshótanir í garð annarrar konu. Margrét var síðar sýknuð í Landsrétti.Aðalmeðferðin um ákæruna gegn Margréti fór fram í janúar og vakti mikla athygli. Barbara bar vitni og rakti ásakanir Margrétar í sinn garð til eineltis sem hún sagðist hafa orðið fyrir af hálfu annars dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur, Sig
Fá ekki að kalla þrjá dómara til að bera vitni

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta