Tveir af helstu glæpasagnarithöfundum Íslands eru án efa Ragnar Jónasson og Yrsa Sigurðardóttir. Þau eru vinir og halda t.d. saman hátíðina Iceland Noir ár hvert.„Okkur hefur nú dottið það í hug og það er nú meir að segja aðeins komið áleiðis,“ segir Ragnar þegar hann er spurður hvort honum og Yrsu hafi einhvern tímann dottið í hug að skrifa bók saman. „Það er bók í bígerð, já,“ segir Yrsa og Ragnar bætir við að bókin sé þó ekki væntanleg á þessu ári.Ragnar og Yrsa mættu í Miðstöðina á RÚV til þess að ræða glæpaþætti í sjónvarpi og mæltu með þáttum sem áhorfendur ættu að horfa á.Þú getur séð áhugavert spjall við þau í spilaranum hér að neðan.Hvernig verður góð glæpasaga að góðum glæpaþáttum í sjónvarpinu? Ragnar Jónasson og Yrsa Sigurðardóttir ræddu glæpaþætti í Miðstöðinni á RÚV.Yrsa og R