Útlit er fyrir rólegheitaveður í dag. Smá bleytu verður vart sunnan- og vestantil en bjartara verður yfir á norðaustanverðu landinu. Hitastigið rís ekki sérlega hátt en nær þó tólf stigum þar sem verður hlýjast.Helst er að borið geti til tíðinda á norðanverðu Snæfellsnesi. Þar er spáð hvössum vindstrengjum.Veðurhorfur á landinu til miðnættis annað kvöld:Suðlæg átt, yfirleitt á bilinu fimm til þrettán metrar á sekúndu. Skýjað og dálítil væta öðru hverju sunnan- og vestantil, en bjart með köflum á norðaustanverðu landinu. Hiti verður á bilinu sex til tólf stig að deginum.Næstu daga verður sunnan- og suðaustanátt og milt veður. Smá væta öðru hverju um helgina og síðan rigning, einkum sunnan- og vestantil, en úrkomuminna norðaustanlands. Suðvestlægari á miðvikudag, skúrir eða slydduél sunnan-