„Við vorum í öðru pönkbandi sem hét fyrst Skerðing, svo breyttist það í Snowed in. Þessi hópur sem var í því bandi ákvað fyrir Músíktilraunir að stofna hardcore-pönkhljómsveit. Það var eiginlega bara vegna þess að trommarinn okkar það ár varð að verða 25 ára. Það er aldurstakmarkið fyrir þátttöku í Músíktilraunum. Þannig að mjög stuttu fyrir umsóknarfrestinn tókum við upp tvö alveg skelfileg demó, sóttum um og spiluðum okkar fyrstu tónleika sem Gaddavír þarna á Músíktilraununum 2017.“Þannig lýsti Kristján Alexander Reiners Friðriksson, söngvari í Gaddavír, upphafi hljómsveitarinnar í Rokklandi um síðustu helgi. Hljómsveitin var valin til þátttöku í Músíktilraunum á sínum tíma en komst ekki í úrslit. Hún hélt þó áfram og í vor kom út önnur breiðskífa hennar. Sú heitir Akranes Krú og vísar h