Palestínumenn á Vesturbakkanum og í borginni Deir el-Balah á miðsvæði Gaza ganga til sveitastjórnarkosninga í dag. Þetta eru fyrstu kosningarnar síðan stríð braust út á Gaza í október 2023.Um 1,5 milljón manna er á kjörskrá á Vesturbakkanum og um 70.000 kjósendur eru á kjörskrá í borginni Deir el-Balah. Flestir framboðslistar eru mannaðir af frambjóðendum sem styðja Fatah-hreyfinguna og Mahmoud Abbas forseta en aðrir skilgreina sig sem óháða frambjóðendur.Enginn er í framboði fyrir Hamas-samtökin sem eru erkióvinur Fatah-hreyfingarinnar og stjórna um helmingi Gaza-svæðisins. Í borgunum Nablus og Ramallah og fleiri borgum á Vesturbakkanum er aðeins einn listi í framboði. Því er sjálfkjörið í þeim borgum.Gaza-svæðið hefur verið undir stjórn Hamas-samtakanna frá árinu 2007. Ekki hafa verið ha