Forstjóri gervigreindarfyrirtækisins OpenAI, Sam Altman, hefur beðið íbúa í smábænum Tumbler Ridge í Bresku Kólumbíu í Kanada innilegrar afsökunar á því að hafa ekki greint lögreglu frá ChatGPT-reikningi Jesse Van Rootselaar, sem skaut átta til bana í skotárás í febrúar.OpenAI lokaði fyrir aðgang að reikningi Rootselaar átta mánuðum fyrir skotárásina þar sem notkun reikningsins þótti benda til ofbeldisfullrar hegðunar. Fyrirtækið tilkynnti atvikið þó ekki til lögreglu, þar sem ekki var talið líklegt að Rootselaar myndi beita ofbeldi. ÍBÚAR TUMBLER RIDGE HARMI SLEGNIR Rootselaar skaut móður sína og stjúpbróður ásamt fimm nemendum í gagnfræðaskóla og einum kennara 10. febrúar. Um 2.400 manns búa í Tumbler Ridge og skotárásin var áfall fyrir samfélagið.Eftir árásina í Tumbler Ridge, fordæm