Jakob hefur getið sér gott orð fyrir kvikmyndatökur bæði hérlendis og í Noregi.Rúnar GíslasonÍslenski kvikmyndatökumaðurinn Jakob Ingason vann til verðlauna fyrir bestu kvikmyndatöku á norsku sjónvarpsverðlaunahátíðinni Gullruten sem veitt voru á fimmtudaginn.Verðlaunin fékk Jakob fyrir kvikmyndatöku fyrir þáttaröðina Heajastallan sem nefnist Brúðkaupsveislan á íslensku og er aðgengileg í Spilara RÚV. Þættirnir eru norskir og voru teknir upp í Lapplandi í Norður-Noregi.Jakob hefur verið kvikmyndatökumaður í mörg ár og starfað bæði í Noregi og á Íslandi við fjölda kvikmynda og sjónvarpsþáttaraða. Hann stjórnaði til að mynda kvikmyndatöku í kvikmyndinni Ég man þig og sjónvarpsþáttunum Afturelding.