13 voru drepnir í árásum ísraelska hersins á Gaza í gær, þar af eitt barn. Vopnahlé hefur verið í gildi frá 7. október. Þrátt fyrir það hafa árásir haldið áfram og ásakanir Ísraelshers og Hamas ganga á víxl um ítrekuð brot á vopnahléinu.Að minnsta kosti 792 hafa verið drepnir á Gaza frá því að vopnahléið hófst samkvæmt heilbrigðisráðuneytinu sem lýtur stjórn Hamas. Sameinuðu þjóðirnar segja þessar tölur áreiðanlegar. Samkvæmt ísraelska hernum hafa fimm hermenn fallið á Gaza í vopnahléinu.Aðgangur fjölmiðla að Gaza er mjög takmarkaður og blaðamenn AFP fréttaveitunnar hafa ekki fengið aðgang til að fjalla um átökin eða sannreyna tölur yfir fjölda þeirra sem hafa verið drepnir í átökunum.