Norski hryðjuverkamaðurinn Anders Behring Breivik hefur enn einu sinni farið fram á reynslulausn úr fangelsi. Þetta er í þriðja sinn sem hann reynir það frá því hann hlaut hámarksrefsingu sem norsk lög leyfa.Breivik varð 77 manns að bana í júlí fyrir tæpum fimmtán árum og var dæmdur til 21 árs fangavistar árið eftir. Sakarefnin voru hryðjuverkaárás á stjórnarbyggingar í Osló og á Útey þar sem ungliðar Verkamannaflokksins voru saman komnir.Það er hámarksrefsing í Noregi en dóminn má framlengja meðan hætta er talin stafa af Breivik. Øystein Storrvik, lögmaður Breiviks, staðfestir beiðnina og segir Breivik lögum samkvæmt fá dómstól til að meta líkurnar á að hann endurtaki brot sín.Breivik kom sprengju fyrir í miðborg Oslóar sem varð átta að bana og dulbjó sig svo sem lögreglumann og hélt til