„Þessir tveir vetur hér á Hvanneyri hafa verið afar lærdómsríkur tími. Nú sný ég í sveitina og helli mér út í hestamennskuna,“ segir Sólrún Silfá Guðmundsdóttir, hestakona frá Sauðárkróki. Hún er handhafi Morgunblaðsskeifunnar sem veitt var á Hvanneyri í gær við hátíðlega athöfn og samkvæmt hefð sem nær aftur til ársins 1957.