Eftirlitsstarfsmenn Matvælastofnunar hafa orðið fyrir óvenju mikilli áreitni, hótunum og ærumeiðingum á samfélagsmiðlum undanfarið. Atvikin eiga það sammerkt að tengjast afskiptum stofnunarinnar af dýrahaldi og þvingunarúrræðum.Þóra Jóhanna Jónasdóttir, yfirdýralæknir MAST, segir starfsfólk hafa þurft að koma upp öryggiskerfi heima hjá sér til að tryggja öryggi sitt og barna sinna.„Það getur verið allt frá líkamsárásum, slögum, höggum, jafnvel hafa verið notaðar hafnaboltakylfur,“ segir Þóra.„Fólki er hrint. En svo oft, og kannski ekki síður erfiðar lífsreynslur ef fólki er hótað óbeint: Ég veit hvar þú átt heima. Ég á vini sem geta komið í heimsókn og svo framvegis. Það veldur auðvitað óöryggi og ótta þannig að fólki líður ekki öruggt heima hjá sér. Og það er alvarlegt.“