Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Stjórnarandstaðan sakaði meirihlutann um blekkingar

Þingmenn minnihlutans gáfu lítið fyrir svör utanríkisráðherra á fundi utanríkismálanefndar Alþingis um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu í dag. Þeir sökuðu ráðherra meðal annars um að blekkja þjóðina varðandi skilyrði um aðlögun að ESB.Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sagði ekkert til í fullyrðingum um að Ísland yrði að hefja aðlögun að ESB samstundis ef þjóðin veldi að halda áfram viðræðum.Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði að liggja þurfi skýrt fyrir hvað felist í aðild að Evrópusambandinu áður en gengið er til fyrstu þjóðaratkvæðagreiðslu um málið.Fundurinn var öllum opinn. Meðal þess sem kom til tals var fullveldi, krónan, yfirráð yfir auðlindum og öryggis- og varnarmál.
Stjórnarandstaðan sakaði meirihlutann um blekkingar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta