Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Svíar hugfangnir af elgum í leiðangri

Elgir í norðurhluta Svíþjóðar hafa vor hvert í þúsundir ára gengið sömu leið til að komast í sumarhagana. Þetta ferðalag elganna er nú orðið mjög vinsælt sjónvarpsefni. Sérfræðingur telur að fólk horfi til að öðlast ró á vályndum tímum.Útsending sænska ríkissjónvarpsins frá ferðum elganna í ár hófst í fyrradag. Það er að ýmsu að huga við útsendinguna. Fjarstýrðum myndavélum hefur verið komið upp, meðal annars í skógi og við ána Ångerman.Håkan Lyktberg, myndatökumaður hjá SVT, er einn þeirra sem koma að útsendingunni og skipulagningu hennar. Hann segir virkilega spennandi og skemmtilegt að fylgjast með ferðum elganna. „Jú, maður vonast til að sjá þá hreyfa sig einhvers staðar. Við þekkjum myndrammana. Við sjáum strax ef eitthvað breytist.“Sænskir sjónvarpsáhorfendur fylgjast hugfangnir með
Svíar hugfangnir af elgum í leiðangri

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta