Sjálfstæðisflokkurinn mælist stærsti flokkurinn í Reykjavíkurborg fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar með 25,4% fylgi.Þetta kemur fram í nýrri könnun Maskínu sem Sýn birti í kvöld.Hann hefur tekið fram úr Samfylkingunni frá því í fyrri könnun, hún mælist nú með 21% fylgi í borginni. Í síðasta mánuði mældist ekki marktækur munur á þeim.Flokkarnir tveir eru þó áfram langstærstir. Sjálfstæðisflokkurinn fengi samkvæmt þessu sjö borgarfulltrúa kjörna en Samfylking fimm. Litlu munar þó að þau nái inn þeim sjötta. ÁTTA FLOKKAR INNI Þriðji stærsti flokkurinn er Viðreisn með 11,7% fylgi. Þá Vinstrið með 10,6% og Miðflokkurinn með 10. Þeir fengju tvo til þrjá menn inn samkvæmt könnuninni.Átta flokkar næðu inn fulltrúum samkvæmt Maskínu.Sósíalistaflokkur og Píratar mælast jafnstórir með 5,2% fy