Hljómsveitin Tíbrá frá Akranesi fagnar 50 ára afmæli með tónleikum í Bíóhöllinni á Akranesi á morgun 25. apríl.Fjórir félagar byrjuðu að spila saman undir nafni Tíbrá árið 1976 og hljómsveitin var mjög aktíf í rúman áratug - gaf út 3 plötur á árunum frá 1982-1987 og var mjög vinsæl á sveitaböllum á vesturlandi árum saman.Tíbrá hefur verið starfandi með hléum alla tíð og á tónleikunum á morgun verða sömu fjórir og byrjuðu að spila saman 1976. Það eru þeir Flosi Einarsson hljómborðsleikari, Eiríkur Guðmundsson trommuleikari og Jakob R. Garðarsson bassaleikari – og Eðvarð Lárusson gítarleikari. Með þeim verða svo ýmsir gestir.Rokkland heimsótti Tíbrá á ævingu á dögunum og spjallaði við þá Flosa og Eirík.