Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Sakamálarannsókn á hendur seðlabankastjóra felld niður

Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur afturkallað sakamálarannsókn á hendur Jerome Powell seðlabankastjóra. Saksóknarinn Jeanine Pirro greindi frá þessu í færslu á X í dag. Jerome Powell seðlabankastjóri Bandaríkjanna lætur af störfum í maí.EPA / JIM LO SCALZORannsóknin tengdist vitnisburði Powells fyrir nefnd öldungadeildar Bandaríkjaþings á fundi í fyrra um endurbætur á húsnæði seðlabankans. Donald Trump forseti hafði krafist hraðari lækkunar vaxta en bankinn lagði til. Þingmenn beggja deilda Bandaríkjaþings, fyrrverandi seðlabankastjórar Bandaríkjanna og seðlabankastjórar annarra ríkja hafa sagt tilgang rannsóknar ráðuneytisins vera að draga undan sjálfstæði bankans. Ráðningartíma Powells lýkur í maí.
Sakamálarannsókn á hendur seðlabankastjóra felld niður

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta