Evrópusambandið hefur hleypt af stokkunum opinberri spillingarrannsókn á meintum brotum Peter Mandelson meðan hann var viðskiptastjóri sambandsins frá 2004 til 2008.Rannsakendur á vegum sambandsins staðfesta við The Telegram að rýnt sé í öll samskipti Mandelson sem finna má í Epstein-skjölunum til að meta hvort hann hafi mögulega gerst sekur um fjársvik, spillingu og alvarlegt misferli þess fjögur ár.Að öðru leyti vilja rannsakendur fátt segja og ekki er vitað hvort sérstakar ásakanir hafi orðið kveikja rannsóknarinnar. Mandelson sætir lögreglurannsókn í heimalandinu Bretlandi vegna tengslanna við kynferðisbrotamanninn Jeffrey Epstein. Hver er Peter Mandelson og hvaða tengsl hafði hann við Jeffrey Epstein? Peter Mandelson er áhrifamaður í breska Verkamannaflokknum. Eða var, öllu heldur. Ma