Nítján stúlkur kepptust í vikunni um titilinn Ungfrú Ísland í Gamla bíói. Þær gengu meðal annars um á sundfötunum og svöruðu spurningum um málefni líðandi stundar sem og um málefni sem brenna á þeim. Keppnin einkenndist af glamúr, glimmeri og glæsilegheitum.