RÚV / Ragnar VisageÁrekstur varð á Reykjanesbraut við Hnoðraholt í Garðabæ á fimmta tímanum í dag. Samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu skullu fimm bílar saman. Einn sjúkrabíll og dælubíll voru sendir á vettvang. Sex manns voru fluttir á slysadeild til skoðunar. Dælubíll var sendur á vettvang til þess að hreinsa brak af brautinni. Fjarlægja þurfti tvo bíla sem voru ekki ökufærir. Samkvæmt Guðjóni Ingasyni, varðstjóra hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, varð einnig minniháttar olíuleki.Fréttin hefur verið uppfærð með nánari upplýsingum.