Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Orrustuþotur höfðu afskipti af rússneskum herþotum innan lofthelginnar

Pólskar orrustuþotur höfðu afskipti af tveimur rússneskum herþotum innan lofthelginnar yfir Eystrasalti. F16 orrustuþota pólska flughersins.EPA / JAKUB KARCZMARCZYKAðstoðarvarnarmálaráðherrann Cezary Tomczyk greindi frá þessu í færslu á X án þess að tilgreina hvenær atvikið varð né hve margar pólskar þotur voru sendar á loft. Hann sagði Atlantshafsbandalagið bregðast umsvifalaust við öllum öryggisbrotum Rússa í lofthelgi Póllands og annarra aðildarríkja. Pólskar herþotur höfðu afskipti af rússneskri njósnaflugvél innan lofthelginnar fyrir rúmum hálfum mánuði. Þá sagði varnarmálaráðherrann Wladyslaw Kosiniak-Kamysz Rússa viðhafa ögrunartilburði til að reyna á varnarviðbúnað Póllands.
Orrustuþotur höfðu afskipti af rússneskum herþotum innan lofthelginnar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta